7 staðir í Lissabon sem þú ættir ekki að missa af
Ef þú ert að plana ferð til Lissabon bíður þín borg sem er full af litum, sögu og góðum mat. Hér mætast sögulegir sporvagnar, falleg útsýni yfir Tagus-ána og litlar götur þar sem gaman er að rölta um og uppgötva nýja staði.
Hvort sem þú ert í stuttri helgarferð eða dvelur lengur í borginni eru hér nokkrir hlutir sem þú ættir alls ekki að missa af þegar þú heimsækir portúgölsku höfuðborgina.
1. Farðu í sporvagninn Tram 28
Eitt af því sem margir tengja strax við Lissabon eru litlu gulu sporvagnarnir sem keyra um borgina. Sporvagn númer 28 er sérstaklega vinsæll þar sem hann liggur í gegnum nokkur af fallegustu og elstu hverfum borgarinnar, þar á meðal Alfama, Graça og Baixa.
Ferðin sjálf er upplifun þar sem sporvagninn liðast um þröngar götur og framhjá litríkum húsum. Þetta er skemmtileg leið til að sjá stóran hluta borgarinnar á stuttum tíma.

2. Rölta um Alfama
Alfama er elsta hverfi Lissabon og eitt það fallegasta. Þar liggja þröngar steinlagðar götur á milli gamalla húsa með svölum og þvotti sem hangir yfir götunum.
Hér er gaman að villast aðeins, finna lítil kaffihús eða setjast niður á veitingastað og njóta útsýnis yfir Tagus-ána. Á kvöldin fyllist hverfið oft af tónlist þegar hefðbundin Fado tónlist hljómar út úr litlum veitingastöðum.






3. Heimsækja Belém
Belém er eitt af þekktustu svæðum Lissabon og þar má finna nokkur af helstu kennileitum borgarinnar. Þar stendur meðal annars hinn frægi Belém-turn og hið glæsilega Jerónimos klaustur.
Á meðan þú ert á svæðinu er nánast skylda að stoppa hjá Pastéis de Belém og smakka eina frægustu köku Portúgals, pastéis de nata. Nýbökuð með smá kanil og púðursykri, þær eru algjör klassík.

4. Njóta útsýnisins frá Miradouros
Lissabon er byggð á hæðum og víða um borgina eru fallegir útsýnisstaðir sem kallast miradouros. Þar geturðu sest niður, fengið þér drykk og notið útsýnis yfir þök borgarinnar og Tagus-ána.
Meðal vinsælustu útsýnisstaðanna eru Miradouro da Senhora do Monte, Miradouro de Santa Catarina og Miradouro da Graça. Þetta eru líka frábærir staðir til að horfa á sólsetrið.


5. Upplifa stemninguna á Pink Street
Ein líflegasta gata Lissabon á kvöldin er svokölluð Pink Street, eða Rua Nova do Carvalho, sem er auðþekkt fyrir bleika malbikið sitt. Gatan er staðsett í Cais do Sodré hverfinu og hefur á síðustu árum orðið einn vinsælasti staðurinn fyrir næturlíf í borginni.
Þar má finna fjölda bara og klúbba sem fyllast af fólki þegar líður á kvöldið. Stemningin er yfirleitt lífleg og skemmtileg og margir byrja kvöldið á einum stað áður en þeir halda áfram á næsta.
Svæðið í kring er líka fullt af veitingastöðum og kaffihúsum, þannig að auðvelt er að stoppa þar áður en kvöldlífið tekur við.

6. Kíkja í LX Factory
LX Factory er skapandi og líflegt svæði í Lissabon sem hefur orðið mjög vinsælt á síðustu árum. Þar má finna veitingastaði, kaffihús, hönnunarverslanir og bókabúðir í gömlum iðnaðarhúsum sem hafa verið endurhönnuð.
Þetta er frábær staður til að eyða rólegum eftirmiðdegi, fá sér kaffi eða skoða litlar verslanir og hönnun.




7. Fara yfir Tagus-ána og skoða útsýnið frá Cristo Rei
Ein skemmtileg leið til að sjá Lissabon frá öðru sjónarhorni er að fara yfir Tagus-ána. Frá Cais do Sodré ganga reglulega ferjur yfir til bæjarins Almada hinum megin árinnar.
Ferjan tekur aðeins um 10–15 mínútur og er einföld leið til að komast yfir án þess að þurfa að bóka sérstaka ferð. Þegar komið er yfir er hægt að rölta um hverfið eða taka stutta ferð upp að Cristo Rei styttunni, sem stendur á hæð með stórkostlegu útsýni yfir Lissabon, ánna og 25 de Abril brúnna.




Ertu að skipuleggja ferð til Lissabon?
Á Flakkid.is má finna húsnæði til leigu eða húsaskipta víða um heim.



