Langtímaleiga: penthouse endaíbúð með þaksvölum og sjávarútsýni
Til leigu
Eignin er nýleg og afhendist fullbúin vönduðum húsgögnum. Gengið er inn um sérinngang í forstofu. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi. Eldhús er útbúið gæða tækjum, innfeldur vaskur og filter á vatninu(drykkjarvatn). Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús. Eldhús er skemmtilega opið við stofu og borðstofu, og frá stofu er rennihurð út á 13 fm svalir með morgunsól og markísu. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og stærsta svefnherbergið er með sér baðherbergi. Bæði baðherbergin eru flísalögð, með góðri innréttingu og sturtu. Geymsla er innan íbúðar. Miðstýrt innfelt loftræstikerfi er innan íbúðar sem hægt er að nota bæði til að kæla og hita.
Sér 74 fm þakverönd. Þar er stórglæsilegt útsýni til sjávar og yfir sundlaugargarðinn. Þar sem eignin er staðsett við enda hússins er mikið næði og hægt að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds. Á þaksvölum er einnig markísa, ásamt vatnstengi og sturtu.
Rúmgott stæði í lokuðum bílakjallara lyftan alla leið niður.
Um er að ræða best staðsettu eignina í þessu fallega húsi og einstakt tækifæri til njóta í penthouse íbúð í hjarta Orihuela Costa í göngufæri við verslanir, veitingastaði og golfvelli.